Góðan daginn
Ég hef verið að koma mér fyrir í nýju vinnunni minni. Þetta er stærsta verkefnið sem ég hef hingað til tekið mér á hendur í starfi mínu hjá Saga Film, en ég mun sjá um að hanna framleiðslu á nýjum sjónvarpsþætti.
Ég er ekki viss um hversu mikið ég get sagt um það á svo opinberum vettvangi sem þessum þar sem ég er bundinn trúnaði um framleiðsluna. Það sem má koma fram er að þetta er ný raunveruleika sjónvarpssería fyrir Skjá 1.
Þetta er afar spennandi verkefni þar sem ég þarf að halda utan um stærri pakka á þessu sviði en ég hef gert hingað til.
En nóg um það.
Leikhúsið er farið í frí að undanskildum sumaruppákomunum sem tröllríða samfélagi okkar þegar sól tekur að rísa á himni. Ég átti reyndar upphaflega að vera að vinna við uppsetningu á söngleik þetta sumarið en þar sem tíminn þótti of stuttur þá varð það úr að bíða með það fram á næsta sumar (og þá er náttúrulega ekki víst að ég geti starfað við það þar sem skólavist mín verður þá í forgangi, en það er önnur saga).
Svo er ég ennþá að bíða eftir því að fá bréf frá skólanum þar sem útlínur vetrarins eru lagðar niður svo ennþá óvissan hérna megin.
Var á Akureyri fyrr í dag þar sem ég hitti krakkana mína aftur eftir ævintýri vorsins þar norðan heiða. Það var alveg frábært að hitta þau aftur og þakkaði fyrir mig með því að skrifa ratleik fyrir þau eins og faðir minn gerði fyrir okkur systkynin þegar við vorum minni (og gerir reyndar stundum enn). Leikurinn byggir á því að skrifa í raun orðaleiki sem leiðir fólk áfram, skiljirðu orðleikinn þá finnur þú út hvar þú átt að leita næstu vísbendingu og svo videre. Leikurinn fór fram í Dimmuborgum við Mývatn og var í meira lagi skemmtilegur enda veðrið frábært, náttúrfegurðin ægileg og félagsskapurinn frábær.
Þar var magnað að hlusta á þau lýsa reynslu sinni að vinnunni við Ríginn. Það var sú tilfinning ríkjandi að þetta hefði verið meiriháttar upplifun og það að sýna aga, vinnusemi og fylgni í uppsetningunni hefði skilað sér, ekki bara í sýningunni heldur líka í afstöðu þeirra.
Leikhúsið getur nefnilega verið afar öflugur staður til þess að læra inn á lífið því það sama þar til þess að skara fram úr þar sem annars staðar.
Glaður maður kveður í bili...
Þorleifur
sunnudagur, júní 12, 2005
fimmtudagur, júní 02, 2005
Góða kvöldið
SOt eftir langan dag á hinu rómaða kaffihúsi Kaffibrennslunni (einu sinni sem oftar) og diskútera heiminn.
Fórnarlambið í dag er Hilmar vinur minn sem hefur marga svipaða ausuna sopið, on the bottle and off, og því urðu hér í kvöld fagnaðarfundir.
Niðurstaða kvöldsins mætti súmmera upp með eftirfarandi:
- Ég veit ekki hvernig, ég veit ekki hvenær og ég veit ekki af hverju, en mannsandinn mun sigra að lokum!
- Fyrst er það vilji, allt annað er tækni!
Þá hafið þið það, farið nú út í lífið með þessi vísdómsorða að vopni og sjá, flóðgáttir himnanna munu opnast og ljósið streyma yfir ykkur.
Sendið mér svo e-mail frá geðsjúkrahúsinu!

mánudagur, maí 30, 2005
Halló halló
Þá er maður sokkinn í kapítalismann og farinn að framleiða auglýsingar svona ti þess að tóra í gegnum sumarið (og ef ég er heppinn) spara fyrir Berlínarvetrinum.
Það er fyndið með auglýsingar að undirbúningurinn er svona eins og með hvert annað verkefni, nema að hér er undirbúningurinn, umræðurnar og ferlið svona 50 sinnum hraðara.
Öllum táknmyndum eru bara kippt inn og ákveðnar samdægurs, rökstuðningur bakvið ákveðin skot er á sama reiki, það er allt í ákveðnu ferli í listrænu ákvarðanaferli sem er ekkert freábrugðið því sem maður myndi gera í mynd eða leikhúsi nema þetta er spítt-útgáfan. Skemmmtilegt en það er eins gott að maður sé í stuði andlega og líkmlega!
Annars horfi ég fram á vinnusumar og vona að ég nái að grípa í sköpun inn á milli einshversstaðar til þess að missa ekki vitið!

sunnudagur, maí 29, 2005
Halló
Þetta er búin að vera spennandi helgi. Vinur minn Jani Lenonen kom í heimsókn til þess að tala á pallborðsumræðum í sambandi við Listahátíð. Verk hans á farandssýningunni, Populism, vöktu töluverða athygli og því ákvað litla Ísland að bjóða honum hingað til þess að deila með okkur visku sinni.
Ég og hann erum lengi búnir að tala um að framkvæma einhverskonar verkefni saman og þessi heimsókn virðist hafa styrkt okkur í þeirri trú þar sem nú er allt útlit fyrir að ég fari til Helsinki til þess að vinna með honum að uppákomu á listahátíðinni í Helsinki í haust.
Það sem gerir það að verkum að þetta samstarf yrði spennandi er það að ég er afar skeptískur og oft full alvarlegur þegar kemur að list og samfélagi. Hann aftur á móti sér frekar spaugilegu hliðina (eða fegurðina) í kapítalíska samfélaginu og finnur leiðir til þess að endurspegla það í verkum sínum, sem fyrir vikið verða oft afar gagnrýnin. Þessir tveir pólar ættu því að geta unnið vel saman þar sem við njótum þess mjög að tala og spögulera og endurvarpa hugmyndum hvors annars til þess að kasta á þær nýju ljósi.
En verkefnið er ennþá á fósturstiginu og því vil ég ekki tjá mig of mikið um það á þessu stigi.
Annars fór ég í leikhúsið hér heima eftir vonbrigðin í Berlín og sá Draumleik. Og að mörgu leyti varð ég hrifinn. Þarna var mikið af góðum hugmyndum, jafnvel djörfum. Útfærslan á mörgum senum mjög góð og náttúrulega frábær leikmynd.
Reyndar átti ég í töluverðum vandræðum með grunnkonseptið. Þar sem Agnesi (dóttir guðsins Indra) var svipt upp úr áhorfendasalnum til þess að fylgjast með mönnunum. Það sem þessi upphafsgjörð gaf til kynna var það að við, áhorfendurnir, værum guð (eða hinir sem sjá). Þetta útaf fyrir sig er spennandi konsept en því miður varð lítið úr því að þetta konsept yrði notað og þegar ýjað var að því að það yrði gert þá var það svo óreiðukennt að ekki var hægt að sjá út að um gegnhugsað konsept væri að ræða.
Annað konsept í sýningunni sem vakti athygli mína (og tengist vissulega því fyrra) var fréttaflutningskonseptið.Það að Agnes væri á jörðinni í hlutverki fréttakonu til þess að "recorda" hvernig mennirnari hefðu það. Þetta er snilldarleg nálgun að verkinu. Jesú snýr aftur og er "reporter" fyrir pabba á himnum.
En aftur var þetta konsept ekki í sýningunni nema til hálfs. Og mér fannst tengingin milli konseptanna tveggja sem ég hef minnst á hér að ofan ábótavant. Í raun er ég að tala um að þarna voru góðar hugmyndir á ferð sem ekki var unnið nægilega vel úr.
Hugsið ykkur hvað það væri frábær hugmynd að jesú snéri aftur sem blaðamaður og reportaði til áhorfenda leikhússins (sem er hið eina sem raunverulegt er í leikhúsinu , rétt eins og ímynd af guði í heiminum) því sem hún sæji. Alvöru pólitísk hugsun út úr verkinu. Og endalausir möguleikar á því að gagnrýna bæði menn og fjölmiðla. En það þyrfti að vera gegnumgangandi konset í verkinu, það dugar ekki að impra á því af og til.
En þegar á leið verkið fannst mér betur og betur unnið úr senum, þær urðu markvissari, persónulegri og skýrari. Enda er kannski textinn bestur þar. Einnig fannst mér góðar senurnar í leikhúsinu enda sjálfhverft og spennó fyrir okkur rotturnar.
En þegar uppi stendur með því betra sem ég hef séð hér heima í þó nokkurn tíma, þrátt fyrir gallana því að þarna var pótentíal sem ég sé sjaldan hér heima og hlakka til þess að sjá hvað hann BEnedikt gerir næst.

föstudagur, maí 27, 2005
Halló öll saman
Þá er maður loksins kominn heim á eyjuna. Og að venju er það sambland af ánægju og vonbrigðum að kom heim.
Ánægjan felst auðvitað í því að kunnuleg andlit blasa við á hverju horni, veðrið er alíslenskt, húsin lítil og krúttuleg, Esjan í blóma og svo auðvitað kaffibrennslan!
En svo fer ég í fyrsta innkaupaleiðangurinn og öll gleði er horfin fyrir bí. Og ég var ekki reiður út í Baug, heldur út í íslensku þjóðina sem lætur bjóða sér þetta. HVAÐ ER EIGINLEGA Í GANGI!!!!!??????
Þessi þjóð sem svo lengi hefur búið á eyjunni fallegu og þó svo hún sé á persónulegu leveli sterk og áræðin þá er hún samfélagsleg gunga. Það heyrist vart múkk yfir því hvernig farið er með fólk, og á það bæði við um einstaklinga og svo ég tali nú ekki um hópa. SVo sem eins og hópinn sem kaupir í matinn, hópinn sem kaupir föt, hópinn sem vinnur meira en nokkurs staðar í Evrópu, hópinn sem skuldar meira en nokkru sinni fyrr, hópinn sem býr við verra heilbrigðiskerfi, hópinn sem býr við æ verra menntakerfi, hópinn sem býr við spillingu í stjónmálunum, hópinn sem lætur bjóða sér fákeppni og samráð hjá flestum fyrirtækjum. Þessir litlu hópar sem ekkert segja nema á tillidögum. Og maður ber þetta saman við átakið sem er í gagni í sambærilegum málum út í heimi og maður spyr sig HVAÐ ER Í GANGI!!!!?????
Og svo man maður hvað hvað þjóðin er lítil og ung. Hvernig hún hefur aldrei farið í gegnum borgaralega byltingu, hvernig hún heldur stöðugt aftur af sér hugmyndafræðilega því hún heldur að það sem hún sé að gera sé svo stórkostlegt að hún þurfi ekkert að læra. Og þegar ég man þetta þá reyni ég að slappa af og hugsa til þess að kannski sé það bara fallegt og skemmtilegt að það sé einhver þjóð sem er svona. Að sakleysið eigi sér einhversstaðar samastað!

fimmtudagur, maí 26, 2005
Góða kvöldið
Þá situr maður bara í fússi á Kaupmannahafnarflugvelli þar sem hið trausta fyrrum einokunarflugfélag Flugleiðir tókst að setja flugvélina 6 tímum of seint í loftið.
Og ekki nóg með það heldur er allt lokað og ekki kaffitár að finna (svo ég minnist nú ekki á unglingana sem eru að bíða með mér).
En það er skrítin tilfinnig að sitja á mannlausum flugvelli. Ef ég væri nú sniðugur þá myndi ég skrifa hér sögu eða eitthvað slíkt en sé ekki fram á að snilligáfan nái alveg fram í fingurgóma, allaveganna ekki í bili.
En ég er rólega að melta Berlínarferðina og hugsa um mig og leikhúsið, hvað það sé sem ég vilji sjá og hvernig best sé að koma á því á framfæri, hvaða verkfæri henti mér best og hvernig ég fari að því að ná mér í þau...
En allaveganna spennandi tímar framundan.
Bið að heilsa og hlakka til að samanda loftinu góða og fríska.

þriðjudagur, maí 24, 2005
Góðan daginn
Ég er kominn til Köben þar sem ég er að vinna í því að ná heilsu (bæði líkama og geð) eftir ævintýrið í Berlín.
Teatertreffen þetta árið var skandall! Slíkt samansafn af innihaldslausu rusli hef ég aldrei á ævi minni séð, og það á tímum þar sem þýkst mannlíf og samfélag stendur í stórri krísu.
Það sem einkenndi hátíðina var óttinn sem endurspeglaðist í verkunum. Það er eins og ekkert af verkunum sem við sáum þyrðu að segja það sem þau voru að reyna að segja, eða að skilaboðunum var pakkað inn í svo svakalegar umbúðir að ekki var nokkur leið að innihaldi snerti mann.
Langsóttar voru tengingarnar við stríðið í írak, atvinnuleysið í þýskalandi eða nokkurt annað samfélagsleg málefni. Það sem aðallega bar á voru svona post-post-post-post útfærslur á mannlegu samfélagi. Sem dæmi má nefna þá sýningu sme mest fór í taugarnar á mér, Othello í leikstjórn Stefan Pucher.
Othello var hvítur maður málaður svartur. Hann var klæddur glimmergalla og söng og dansaði sig í gegnum allt verkið. Þetta var samkvæmt dómnefndinni pólitísk sýning. Bíddu??? jú, auðvitað, af því að stjórnmálamenn eru "Showmen" í eðli sínu og með því að maska sig þá er maður að fela þann mann sem raunverulega stendur að baki. Nú sé ég, þetta er auðvitað rammpólitísk sýning!
Og ég átti mörg orð við dómnefndina. Fyrst þar sem ég stóð upp á opnum umræðufundi við viðhafnarhátíð Teatertreffen og lýsti þeirri skoðun minni að þetta væri sú allra lélegasta Teatertreffen hátíð sem ég hafði séð, og hún væri á slík lágum standard að ekki væri nokkur leið fyrir mig að trúa því að hátíðin endurspeglaði þýskt leikhús í dag heldur væri hér um að ræða valdsþjónandi kviðdóm sem léti fagurfræði og borgaralegt eðli sitt standa í vegi fyrir því að leikhúsið hefði samfélagslegt hlutverk. Í kjölfarið þá var mikið rifist og skammast, meðal annar var ráðist á mig því að ég hafði gefið viðtal við blað Teatertreffen þar sem ég lýsti þessum skoðunum í ýtarlegu máli og bætti því við að eina ástæðan sem ég sæji fyrir þáttöku tveggja sýninga eftir Stefan Pucher væri að hann hafi sofið hjá einhverjum í kviðdómnum (það sem ég gat ekki vitað var að hann er snarasmkynhneigður og það er hluti að kvikdómnum líka!). En sumsé, þetta viðtal vakti hörð viðbrögð enda berst kerfi sem er á síðustu bensíndropunum þeim mun harðar.
En þetta var frábær upplifun og ég mun bæta við innan skamms svona yfirliti og svo úttekt á bestu sýningu sem ég sá þar, sýning sem er bönnuð í þýskalandi utan dresden og var mikil úlfúð um að henni skyldi ekki vera boðið á hátíðina.
Bestu kv.

miðvikudagur, maí 18, 2005
Godan daginn
Long togn, mikil vinna, endalaus tyska, sudupottur nyrra hugmynda - og serlega slaems leikhuss!
Teatertreffen er i tetta skipti alveg serlega leleg. EG hlakka ekki litid til ad takast a vid rifrildi vid kviddominn tar sem eg tel ad hann hljoti ad samanstanda af listaspirum sem ekki adeins eru ad farst ur tvi ad vera frumlegar heldur bua yfir serlega vondum smekk!
Eg hef ekki orku til tess ad skrifa um leikhusid sem stendur tar sem tad taeki langan tima og mikid plass en hinsvegar verd eg ad taka fram ad tetta FORUM hefur adallega opnad mer dyr inn i nyja heima, skapad tengsl vid leikhusfolk um alla evropu og skerpt a hugmyndafraedi minni og leikhussyn.
Tad verdur gott veganesti inn i vinnuna sem framundan er. Baedi hvad vardar skolann sem og verkefnd sem eg er ad fara i heima med Lifandi Leikhusi.
Bestu kv.
Thorleifur

þriðjudagur, maí 10, 2005
Hallo
Afsakid tognina, hun er ekki viljandi, hun er tysku skipulagsbrjalaedi ad kenna!
Namskeidid fyrir unga leikhusadstandendur er frabaer vettvangur og upplagdur upptaktur af busetu minni her naesta vor.
Eg er a fullu, geri fatt annad en ad diskutera her villvek enda virdist sem tad se uppahaldsydja teirra tjodverja. Namskeidid er fint en rett ad byrja. Eg veit ekki hvert neimskeidshaldarinn Lucas Berfuss, aetlar ad fara med tetta en tad hlytur ad koma, tangad til ta er tetta bara urvals tyskunamskeid to svo eg se ad komast a ta skodun ad hausinn ad mer springi segi eg annad ord a tysku.
Eg er natturulega fremstur i flokki i umraedum eins og er min von og visa og hef gaman af. Tad kemur mer alltaf jafn mikid a ovart hversu fair eru i raun ad velta fyrir ser samfelagslega aktivu leikhusi, kannski vegna tess ad eg get ekki sed leikhusid i odru ljosi. En tad er adallega skemmtilegur umraedugrundvollur.
Eg hef nu tegar sed 2 syningar a hatidinni og eina med Meri. Eg sa Othello eftir einn staersta leikstjora Tjodverja, Puchner, i fyrradag. Tetta var uppgerdarlegt, hallaerislegt og fullt af ironiu a eigin ord og gerdi, hugmyndir og meiningu og tvi fannst mer tetta umfram allt gamaldags, afturhvarf til niunda ratugarins tar sem ekkert matti vera i alvoru og allt turfti ad vera "BARA GRIN". Tessu tokst sem sagt ad drepa fyrir mer taer fau hugmyndir sem to voru godar. Utgangspunkturinn var ad Othello og Destemona vaeri rokkstjornur i samkeppni um fraegd og frama. Othello var hvitur maladur svartur og gerdi eiginlega ekkert annad an ad dansa og syngja James Brown. FRUCHTBAR er eina ordid sem eg get komid vel fyrir mer i tessu samhengi i hinni tysku tungu.
Svo sa eg verkid Gotteskrige i Maxim Gorki i gaer og datt i hug ord sem vel naer utan um syninguna i heild sinni, DORFAMATURISM. Tetta var otrulega lelegt. Tad eina sem virkilega gat skemmt manni var samkeppni leikritahofundar og leikstjora i hvor kaemist ver fra verkinu. Leikstjorinn tok tad a endasprettinum. VErkid fjallar um tysk-arabskan strak sem verdur terroristi. Engin var leikmyndin og greyjid strakurinn sem lek adalhlutverkid vafradi um svidid i mis-pinlegum leikstjora hugmyndum en var aldrei nalaegt tvi ad skila til okkur nokkrum hlut. Hugsunarleysid algert. Og hann gerdi eins og leikarar oft i svona situatjonum, ad hann reyndi sem best hann gat ad vera i momentinu og lifa oskopin af, og gerdi tad svo sem agaetlega-greyjid.
Med Meri sa eg svo TELEFAVELA. Tad er erfitt ad lysa tvi i ordum hvad Polllesch er ad reyna ad gera a svidinu en tad er einhverskonar sambland af ruslleikhusi og economiskri samfelagsgagnryni - med songvum. Tad besta vid Pollesch er ad hann gefur mer aetid hugmyndir hvad eg sjalfur vill eda vill ekki gera i leikhusinu og tvi finnst mer hann afar spennandi.
Annars er tetta bara stift programm fra morgni til kvolds og litid annad haegt ad gera en ad hlaupa a milli leikhusvidburda, namskeida eda hanga a spjalli vid allt tetta spennandi leikhusfolk sem eg deili namskeidi med. Og kannski tegar uppi stendur ta verdur tad, tengslin vid tetta folk, tad sem uppur muni standa eftir dvolina her.

sunnudagur, maí 01, 2005
Góðan daginn
Og góður er hann, allaveganna hér í Berlín. Veðrið er stórkostlegt, 25 gráður og heiðskýrt, andvari og fjarlægar óeirðir.
25 manns voru fangelsaðir hér í gær, sem þykir nú bara ansi gott hér í Berlín á verkamannadaginn. Berlín hefur venjulega dregið til sín óþverralýð Evrópu til þess að skemma og eyðileggja ekki bara eignir BErlínarbúa heldur orðspor þessa merka dags.
En sem betur fer virðist þetta vera á undanhaldi hér og standa þá vonir mínar til þess að í stað þess standi menn hér í friðsamlegum en alvarlegum mótmælum gegn þeim aðgerðum sem Þýska stjórnin og Evrópusambandið standa hér í.
Það væri í raun efni í heilan pistill umfjöllun fjölmiðla Evrópu og Bandaríkjanna um þýskt efnahagslíf. Þessi bölsýniskór er það sem stendur í vegi fyrir efnahagslegri uppbyggingu hér, ekki slæmir inniviðir atvinnulífsins. Og það á sama tíma og Bandarískt efnahagslíf er á einhverjum versta stað í sögu Bandaríkjanna.
En þar sem við búum við efnahgaskerfi sem keyrir á vilja borgaranna til þess að eyða þá er það afar hættulegt að standa í sífelldri svartsýni se ekki er til neins fallinn nema að draga enn frekar úr efnahagsuppsveiflunni hér. Nema að þetta sé dulin aðferð til þess að tortýma velferðarkerfinu sem Þjóðverjar hafa byggt upp á undanförnum áratugum. Og kannski er það líklegast þegar uppi er staðið. Það má nefnilega ekki gleyma því að fjölmiðlar hafa lifibrauð sitt af því að efla stórfyrirtæki...
En að leikhúsinu. Sá í gær sýningu í Prater leikhúsinu í Prenzlauerberg. Sýningin TELEFAVELA eftir Rene Pollech var um margt merkileg, eins og reyndar er hans von og vísa. S'iðasta sýningin sem ég sá eftir hann, SEX, var á svipaðan máta merkileg. Hann er að leika sér með stereótýpuna, ofleikinn, einfalda leiðir að tilfinningum og halda því stíft að okkur að við séum í leikhúsi.
Verkið er, eins og nafnið gefur til kynna, sápuópera á sviði frá fátækrahverfum Brasilíu. Við fáum að kynnast barónessunni og þjóni hennar, sveltum eiginmanni og rússnesku hórunni. Það fer reyndar ekki mikið fyrir söguþræði því það sem hann er að tala um er efnahagsástand heimsins og hvernig kapítalisminn misskiptir tekjum. Persónurnar detta í og úr karakter þegar það þarf og þá venjulega til þess að mála upp fyrir okkur einhverskonar mynd af ástandi og svo hvernig tilfinningar það kallar fram hjá viðkomandi. Sýningin var á köflum mjög fyndin en þá venjulega bundið í texta þar sem snúið var út úr klisjum og venjum sem við á verstu-löndum höfum tamið okkur. Allir að nota og svíkja alla, reyna að ná sínu fram, stinga í bakið þegar það á við, ignora tilfinningalíf ef von er á gróða þar af og svo framvegis.
Leikhúsið sem opnaðist þarna er afar frábrugðið því sem við þekkjum að heiman. Þarna er ekkert baktjaldaleikhús í gangi heldur tók á móti okkur salur með samansafni af stólum sem viðð þekkjum af kaffihúsum, sumarbústöðum og eldhúsborðinu hjá ömmu. Þessu var svo dritað um salinn og sat hver þar sem stólinn lá, eða færði á stað þar sem betur sást til sviðsins. Leikararnir lék aldrei til okkar nema þá ef það var verið að segja okkur eitthvað beint, og þá oftar en ekki í míkrafón, eða þá þegar stoppað var í miðri átakasenu til að kommenta á framvinduna. Á sviðinu var að finna samansafn að húsgögnum sem best ættu heima í Guiding Light og á veggjum var búið að negla upp veggfóður með myndum af mis ríkmannlega búnum herbergjum. Sumsé, allt feik!
Og svo leikurinn: Hann var frá bær. Leikstjóranum tekst á ótrúlegann hátt að draga okkur inn í atburðarás þessara yfirborðskenndu persóna án þess að manni leiðist eða þetta verði einhvernveginn banal. uppgjörsenur klipptar út úr lélegri sápu urðu spennandi og textinn bar þetta allt áfram af ótrúlegri greind.
Allt öðru vísi leikhús og helst til þess fallið að gefa manni eins og mér inspírasjón fyrir eigin verk. Síðast þegar ég sá hann þá fór ég heim og setti upp "Aðfarir að lífi hennar" þar sem ég vann mikið út frá hugfrifum mínum af verki hans SEX, ég geri ráð fyrir að svo verði líka um þessa.
Svo er bara reynt að slappa eins mikið af og hægt er áður en törnin hefst sunnudaginn næsta.
Bið að heilsa heima rómi blíðum.
Þorleifur
Berlín

Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)