miðvikudagur, mars 05, 2008

Góðan daginn

Það er fallegt útsýnið hér af svölum Eymundsson í miðborg Reykjavíkur. Fátt er fallegra en gott veður í Reykjavík.

Ég var búinn að sakna fjallanna, fersks loftsins, vindsins og mannfólksins.

En þessi Íslandsferð hefur verið átakamikil, mun átakameiri en ég bjóst við er ég settist upp í flugvélina. Ég með grillur um að fljúga heim í rólegheitin varð auðvitað ekki að veruleika en þrátt fyrir allt og allt þá er þetta ferð sem hefur opnað augu mín fyrir ákveðnum hlutum í lífi mínu sem ég þarf að skoða - og takast á við.

Skilnaðurinn við konuna mína, sem tók meira en 18 mánuði, hefur skilið eftir sig ör sem ég þarf að horfast í augu við og svo í kjölfarið að takast á við.

Ég veit að ég er yfirleitt ekki mjög persónulegur hér á blogginu en í þetta skipti þurfti þetta bara að koma út.

Og það er alltaf erfitt þegar maður þarf að horfast í augu við ákveðna hluti í fari sínu og hegðun. Staðreynd lífsins virðist vera, að maður finnur til þangað til maður er tilbúinn að horfast í augu við hlutina, gefast upp fyrir þeim, sætta sig við það að vera ekki fullkominn og umfram allt, tilbúinn að breyta og breytast.

Í lífi mínu er nú komin manneskja sem ég veit ekki alveg hvernig ég á að höndla, sem er erfitt, og kannski þarf ég umfram allt að gefast upp fyrir því að ég kann ekki að takast á við svona hluti án þess að ég reyni að fara að íhlutast fyrir um niðurstöðurnar. Ég við stjórnvölinn gengur greinilega ekki jafn vel upp þegar kemur að mínum eigin tilfinningum eins og það gerir þegar ég er að stilla þeim upp á sviðinu. Ég get ekki verið alvaldur í eigin lífi, auðvitað ber ég ábyrgðina, en guð get ég ekki leikið.

Ég er nefnilega impúlsívur - sem er að mestu gott - en til þess að það leiði mann ekki í ógöngur þá verður maður að hafa traustann grunn til þess að byggja á.

Sumsé, dagar sjálfsskoðunnar og viðveru með sjálfum mér.

Og svo bjartari dagar framundan.

Bestu kv.

Þorleifur

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ aftur.

Mátti til með að kommenta aftur þegar ég las lengra.. finnst ótrúlega skrýtið að þú sért giftur og skilinn og fluttur til útlanda og ég veit ekki hvað og hvað og ég er bara ekki inní einu eða neinu hjá þér... :(

Ég vona að þér líði vel, leiðinlegt að heyra með skilnaðinn.

kv. IBB